
Lenti í ekkert smá neyðarlegu í síðustu viku.
Eins og þið sennilega vitið lá Aron á sjúkrahúsi í tvo daga, en þegar
ég fór með hann þangað vissi ég auðvitað ekkert að hann yrði lagður
inn. Jújú hann var lagður inn og fluttur með hraði frá
bráðamóttöku á barnadeild í einangrun. Loks þegar ég lét Ólaf
vita um að við yrðum nóttina var Auðunn farinn að sofa og því ekki hægt
að skjótast til okkar með náttföt og nauðsynjar.
Hey, get nú svo sem alveg sofið í gallabuxum og peysu eina nótt hugsaði ég, Ólafur kemur með heint í fyrramálið.
Nema hvað. Um kvöldið ælir Aron út sig og mig, já og eiginlega
allt herbergið. Þá voru góð ráð dýr, ég strippaði mig niður á
brók og haldara og fékk þennan fína sjúkrahússlopp hjá hjúkkunni, sem
gerði nú ekkert meir en að ná niður á læri.
Við Aron sváfum svo sem ágætlega við malið í vélunum. Morguninn
eftir vaknaði ég og mundi að ég hafði lagt kolólöglega fyrir utan Slysó
og ef ég myndi ekki færa bílinn fyrir 8 fengi ég feita sekt (hef sko
reynsluna...). Ég mátti því labba á stuttum náttslopp
gegnum allt sjúkrahúsið, út á götu, skafa af bílnum, færa hann og inn
aftur
Held að allir sem sáu mig hafi hlegið...
Kv. Sunna á slopp